Sjóarinn síkáti haldinn í Grindavík

Deila:

Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins. Hátíðin verður dagana 31. maí – 2. júní 2019 og lýkur á Sjómannadeginum 2. júní með hátíðarhöldum í tilefni dagsins.

Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt og fjölmargt í boði fyrir alla aldurshópa. Sjóarinn síkáti er fjölskylduhátíði þar sem ungir sem aldnir geta fundið eitthvað við sitt hæfi frá morgni til kvölds. Föstudagurinn einkennist af hátíðarhöldum og þátttöku heimamanna. Íbúar skreyta götur og hús í litum hverfa og klæða sig í samræmi við lit síns hverfis. Farin er Litaskrúðganga sem markar upphaf hátíðarhaldanna niður að hátíðarsvæðinu við Hafnargötu. Íbúar og gestir safnast saman á hátíðarsvæðinu og taka þátt í fjöldasöng. Kvöldið endar á Bryggjuballi á hátíðarsvæðinu.

Á laugardeginum er boðið uppá fjölbreytta barnadagskrá, hægt er að fara í skemmtisiglingu, fjöldi leiktækja eru í boði fyrir gesti og andlitsmálun fyrir þá sem vilja. Tónleikar og viðburðir eru á veitingastöðum bæjarins og á hátíðarsviðinu verður fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri sem þeir Gunni og Felix sjá um að kynna.

Sunnudagurinn einkennist af hátíðarhöldum Sjómannadagsins, til heiðurs sjómönnum og fjölskyldum þeirra. Hátíðarmessa verður í Grindavíkurkirkju þaðan sem gengið verður í Sjómannagarðinn þar sem krans verður lagður að minnisvarðanum Von. Þaðan liggur leiðin að hátíðarsvæðinu og eftir athöfn þar hefst fjölbreytt barnadagskrá. Leiktæki, andlitsmálning, fiskabúr með nytjafiskum og furðufiskum verða við höfnina. Eldri borgarar í Víðihlíð halda daginn hátíðlegan og fá til sín góða gesti.

Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vandaðri barnadagskrá. Líkt og undanfarin ár verður bænum skipt upp í fjögur litahverfi. Björgunarsveitin Þorbjörn kemur að skipulagningu og gæslu.

Dagskrá Sjóarans síkáta 2019

Deila: