Skinney og Þórir komin heim eftir mikla lengingu

Deila:

Tvö skipa Skinneyjar-Þinganess, Skinney og Þórir, eru nú komin heim eftir umtalsverða lengingu í Póllandi. Á þeim eru einnig gerðar ýmsar endurbætur eins og í meðhöndlun afla og aðbúnaði áhafnar. Skipin fara á næstunni til humarveiða.

„Skipin voru lengd um tæpa 10 metra. Settir voru átta metrar í miðjuna á þeim og 1,6 metri aftur í skut, skutrennan lengd. Þessir átta metrar koma á helsta vinnusvæðið í skipunum, bæði á netadekki, millidekki og lest, þannig að þar er gífurleg stækkun. Við hækkuðum stýrishúsið um 1,5 metra  og byggðum yfir bakkann að framan. Því er trolldekkið orðið allt annað og betra til meðferðar á veiðarfærum og afla. Íbúðir voru aðeins endurbættar og bætt við setustofu og tveimur klefum og stakkageymsla stækkuð. Það var því togað og teygt á ýmsa vegu,“ segir Ásgeir Gunnarsson, framkvæmdastjóri veiða hjá Skinney-Þinganesi.

Skipasmíðin Nauta í Gdynía sá um breytingarnar á skipunum. Nú er verið að setja niður nýja aðgerðar- og blæðingarlínu og kælikör sem hönnuð var í samstarfi við Micro. Valka er svo með hugbúnaðinn í þessu kerfi. Önnur fyrirtæki sem koma við sögu eru Kæling með kælihlutann, en allur fiskur verður kældur með RSW sjókælingu og verður íslaus í lest, Raftíðni sér um rafmagnshlutann, Naust Marine endurbætti spilkerfið, Stálsmiðjan Framtak er með stálvinnuna og Megapíp sér um pípulagnir.

„Þetta eru orðin mun meiri skip og öll vinnuaðstaða hefur verið bætt til muna. Við getum nú hámarkað gæði aflans, bæði blæðingu og kælingu og í raun alla meðhöndlun. Það á við bæði bolfisk og humar. Þó blikur séu á lofti í humrinum erum við að hugsa til framtíðar og með þessum breytingum eigum við að geta minnkað brot á humri umtalsvert,“ segir Ásgeir
Bæði skipin voru smíðuð í Tævan fyrir 10 árum og voru fyrir breytingarnar 29 metra löng. Skinney fer til humarveiða um næstu helgi og Þórir viku seinna.

Miklar breytingar eru því að verða á bolfisk- og humarflota Skinneyjar-Þinganess. Steinunn og Hvanney hafa verið seldar til Nesfisks í Garði. Skipin verða afhentar um mitt sumar og í haust. Þinganes er á sölu. Þá eru tvö ný skip í smíðum fyrir fyrirtækið í Noregi og verða þau afhent í haust.

Ljósmynd Hjörtur Gíslason.

 

Deila: