Skipin skima eftir makríl

226
Deila:

Beitir NK, Börkur NK og Vilhelm Þorsteinsson EA hafa haldið til makrílleitar. Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Tómasar Kárasonar skipstjóra á Beiti í gærmorgun og spurði tíðinda.

„Það er heldur lítið að frétta ennþá. Við byrjuðum að fara út fyrir kantinn við Litladýpi og erum nú að fylgja hitaskilum suður eftir. Hér er dálítið síldarlíf en annars ósköp lítið að sjá. Börkur byrjaði leit út við Berufjarðarálshorn og Vilhelm á Papagrunni en er nú að leita í Rósagarðinum. Hoffell er síðan að leita dálítið norðar. Ísleifur mun hafa kastað suður af landinu í gær með litlum árangri og Grandaskipin, Venus og Víkingur, eru að koma að vestan. Fleiri eiga síðan eftir að bætast í hópinn. Mér finnst líkur benda til að það verði að fara töluvert sunnar til að finna eitthvað því það vorar seint í hafinu og sjórinn er mun kaldari við landið en til dæmis í fyrra.

Í fyrra byrjuðum við að veiða á eftir sumum öðrum skipum vegna þess að við vorum í slipp. Þá köstuðum við fyrst 9. júlí í á Þórsbankanum og þá var þar töluvert að sjá, bæði síld og makríl. Það hefur semsagt enginn rekist á neitt sem orð er á gerandi hingað til en færeysku makrílskipin virðast vera að veiðum norður af Færeyjum. Ég hef trú á því að hitastigið í sjónum geri það að verkum að makríllinn komi hingað tiltölulega seint en ég held að hann skili sér,“ segir Tómas.

Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, segir að þar sé allt tilbúið til að taka á móti makríl.
Á myndinni eru Börkur NK og Beitir NK í Norðfjarðarhöfn í gær, tilbúnir að halda til makrílleitar.                                                       Ljósm. Smári Geirsson

Deila: