Skráning hafin á Seafood Expo í Boston

Deila:

Sjávarafurðasýningin Seafood Expo North America fer fram í Boston dagana 15. – 17. mars 2020. Íslandsstofa skipuleggur þjóðarbás á sýningunni í samvinnu við viðskiptafulltrúa Íslands í Norður-Ameríku. Framleiðendum og útflytjendum sjávarafurða gefst þar gott tækifæri til að koma á viðskiptasamböndum og auka sölu í Bandaríkjunum og Kanada.

Kostnaður og skráning:

Þátttökukostnaður á fyrirtæki er kr. 500.000. Innifalið í verði er:

–    Fundaaðstaða á þjóðarbás

–    Fundabókanir

–    Skráning í sýningarskrá

–    Upplýsingar um fyrirtækið á sameiginlegum einblöðungi

–    Aðgöngupassi á sýninguna

–    Listi yfir þá sem heimsækja básin – mögulegir kaupendur

–    Markpóstur með upplýsingum um þátttakendur er sendur fyrir og eftir

sýningu til sjávarútvegsfyrirtækja í Bandaríkjunum og Kanada.

 

 

Deila: