Stjórnsýslan einfölduð

102
Deila:

Alls eru 34 lagabálkar felldir brott í heild sinni, 6 nefndir lagðar niður og stjórnsýsla einfölduð með tveimur nýjum lagafrumvörpum sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, mælti fyrir á  Alþingi í gær. Með lagafrumvörpunum er regluverk á málefnasviðum ráðherra einfaldað töluvert.

Frumvörpin eru afrakstur víðtæks samráðs sem haft var við helstu hagsmunaaðila og stofnanir ráðuneytisins, s.s. Matvælastofnun, Fiskistofu, Hafrannsóknastofnun, Bændasamtök Íslands og undirsamtök þeirra, Samtök atvinnulífsins, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu o.fl.

 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra:

„Þessi frumvörp eru mikilvægt skref og munu skila sér í einfaldra regluverki, sem er til hagsbóta fyrir allt samfélagið. Með einföldu og skilvirku eftirliti búum við til samkeppnishæfara umhverfi fyrir fyrirtæki, neytendum til hagsbóta.“

 

Um er að ræða fjölmargar breytingar á núgildandi lögum á sviði matvæla, landbúnaðar, sjávarútvegs og fiskeldis:

  • 34 lagabálkar felldir brott í heild sinni ásamt úreltum bráðabirgðaákvæðum.
  • Fella brott úrskurðarnefnd um ólögmætan sjávarafla, markanefnd, yrkisréttarnefnd, sauðfjársjúkdómanefnd, ullarmatsnefnd og gærumatsnefnd.
  • Tiltekin starfsleyfi matvælafyrirtækja verði gefin út án tímabindingar.
  • Milliganga ráðuneytisins og staðfestingar ráðherra afnumdar.
  • Einföldun stjórnsýslu við merkingu sauðfjár.
  • Stjórnsýsla skyndilokana er einfölduð.
  • Draga úr skýrsluskilum hjá fiskeldisfyrirtækjum sem framleiða minna en 20 tonn á ári.
  • Fella brott skyldu Fiskistofu til að leggja til sérstakar afladagbækur.
  • Fella brott starfsleyfisskyldu matvælafyrirtækja sem starfrækja fiskeldisstöðvar, og eru með gilt rekstrarleyfi,  vegna frumframleiðslu.
  • Fella brott tilkynningarskyldu innflytjenda og framleiðenda fóðurs innan EES-svæðisins vegna tiltekins fóðurs.
  • Felld er brott heimild ráðherra til að veita krókaaflamarksbátum leyfi til að stunda veiðar á botndýrum með þeim veiðarfærum sem til þarf svo og til hrognkelsaveiða í net. Þess í stað er lagt til að fjallað verði um slíkar veiðar í reglugerð.
  • Stjórnsýslumeðferð veiðitækja sem notuð hafa verið erlendis er einfölduð.
  • Fella brott leyfisskyldu til dragnótaveiða og þess í stað er lagt til að fjallað verði um veiðarnar í reglugerð.
  • Lengja skipunartíma verðlagsnefndar búvara.

 

Allt er þetta liður í 2. áfanga aðgerðaáætlunar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra til næstu þriggja ára sem lítur að einföldun regluverks og er forgangsverkefni í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Fyrr í vetur felldi ráðherra brott 1242 reglugerðir og tvo lagabálka auk þess sem regluverk sem gildir um matvælakeðjuna var einfaldað sem var liður í fyrsta áfanga aðgerðaráætlunarinnar.

Verkefnið er unnið í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem kveðið er á um að gert verði átak í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings og lögð áhersla á skilvirka og réttláta stjórnsýslu

 

 

Deila: