Strandveiðar byrja vel

327
Deila:

Strandveiðar hófust á mánudaginn. Við upphaf strandveiða voru 395 bátar með strandveiðileyfi og nú í gær, 4. maí 2021, voru 434 bátar með virk strandveiðileyfi. 188 bátar eru á svæði A, 69 á svæði B, 56 á svæði C og 121 á svæði D. Í fyrra voru gefin út 331 strandveiðileyfi í upphafi og 249 árið þar á undan.

Alls voru veidd 162.233 kg af óslægðum botnfiski í um 230 löndunum fyrsta daginn. 88 tonn voru veidd á svæði A, 30 tonn á svæði B, 15 tonn á svæði C og 29 tonn á svæði D.

„233 bátar lönduðu alls 164 tonnum á fyrsta degi strandveiða 2021.  Langmest þorskur 158 tonn eða 96% aflans.

Því miður gættu margir ekki að sér og veiddu umfram það sem leyfilegt er 650 þorskígildi, sem svarar til 774 kg af óslægðum þorski.  Það gengur að sjálfsögðu ekki.  Virða verður leikreglur enda telst allur afli inn í pottinn og minnkar það sem kemur í hlut hvers og eins,“ segir um veiðarnar á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

 

 

Deila: