Strandveiðimenn bíða með óþreyju eftir aukningu aflaheimilda

99
Deila:

„Útgerðir 654 strandveiðibáta bíða nú með óþreyju eftir ákvörðun Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um hversu miklu verður bætt við áætlaðan afla þeirra í þorski. Samkvæmt reglugerð verða veiðar stöðvaðar þegar aflinn nær tíuþúsund tonnum.  Nú hafa veiðarnar varað i 41 dag sem skilað hafa 7.642 tonnum, þar af 7.070 tonnum af þorski.  Að óbreyttu verður stöðvun veiða upp úr miðjum ágúst.“ Svo segir í frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda. Þar segir ennfremuur.

LS sendi sjávarútvegsráðherra erindi.pdf sl. fimmtudag þar sem hann er hvattur til að tilkynna hið fyrsta um viðbótarheimildir í þorski til strandveiða.  Ráðherra hefur boðað tilkynningu varðandi strandveiðar nk. mánudag, þann 19. júlí.  Það er ekki seinna vænna þar sem eindagi á að segja sig frá veiðum er 20. júlí.

LS gengur útfrá því að allt það sem nú er til ráðstöfunar úr 5,3% pottinum komi óskert til strandveiða.  Um mánaðarmótin maí – júli, voru það 335 tonn.pdf   Af því hefur 140 tonnum verið úthlutað til að tryggja línuívilnun til loka fiskveiðiársins.  

Í lok júní tilkynnti Fiskistofa um niðurstöðu tilboðsmarkaðar í skiptum á makríl fyrir þorsk.  Alls fengust þar 976 tonn.    

Það liggur því fyrir að mati LS að ráðherra geti því aukið veiðiheimildir til strandveiða um 1.170 tonn.  

Deila: