SVN semur um smíði 380 tonna fiskimjölsverksmiðju

107
Deila:

Í gær var undirritaður samningur við vélsmiðjuna Héðin um smíði á 380 tonna fiskimjölsverksmiðju sem sett verður upp í Neskaupstað. Nýlega var greint frá því að Síldarvinnslan hygðist stækka fiskimjölsverksmiðju sína í Neskaupstað úr 1400 tonna sólarhringsafköstum í 2380 tonna afköst og jafnframt yrði komið upp lítilli verksmiðjueiningu sem gæti afkastað allt að 380 tonnum á sólarhring en umræddur samningur fjallar einmitt um þá einingu.

Samningurinn við Héðin um smíði á litlu verksmiðjueiningunni er upp á 1,7 milljarð króna og samkvæmt honum er gert ráð fyrir að verksmiðjan verði afhent í maímánuði 2022.

Tilgangurinn með því að koma upp lítilli verksmiðjueiningu er að auka hagkvæmni til dæmis með því að spara orku og gert er ráð fyrir að á síldar- og makrílvertíð verði einungis litla verksmiðjan starfrækt enda fer megnið af síldinni og makrílnum til manneldisvinnslu. Á smærri loðnuvertíðum ætti einnig að vera nægilegt að reka einungis litlu verksmiðjueininguna. Sem dæmi má nefna að á yfirstandandi vertíð voru 9700 tonn af loðnu fryst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar en einungis 120 tonn fóru til vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni. Vinnsla á kolmunna mun hins vegar fara fram í stóru verksmiðjunni sem verður þá rekin með hámarksafköstum.

Síldarvinnslan hefur um nokkurra ára skeið unnið að þróunarverkefnum með MATÍS þar sem skoðaðir eru möguleikar á að framleiða verðmætara prótein og lýsi úr því hráefni sem kemur til vinnslu í fiskimjölsverksmiðjunni. Það er ekki síst aukinn ferskleiki hráefnisins sem gerir það kleift að auka verðmætin. Samhliða þeim framkvæmdum sem áður er lýst hefur verið unnið að uppsetningu á lítilli tilraunaverksmiðju með spreyþurrkun og ýmsum öðrum búnaði með möguleika á annars konar framleiðslu en hefð er fyrir.

Myndin er frá undirritun samningsins í gær. Talið frá vinstri: Hafþór Eiríksson rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðja, Jón Már Jónsson yfirmaður landvinnslu, Gunnar Pálsson verkfræðingur hjá Héðni, Gunnþór B. Ingvason, framkvæmdastjóri, Ragnar Sverrisson framkvæmdastjóri
Héðins  og Jakob Valgarð Óðinsson tæknifræðingur hjá Héðni.
Ljósm. Smári Geirsson

 

Deila: