TF-SIF stuðlar að handtöku hasssmyglara

180
Deila:

Spænska lögreglan, Guardia Civil, í samvinnu við Landhelgisgæslu Íslands handtók fjóra smyglara og gerði 963 kíló af hassi upptæk á dögunum. Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, var við landamæraeftirlit á vestanverðu Miðjarðarhafi þegar hún kom auga á hraðbát með torkennilegan varning um borð. Höfuðstöðvum lögreglunnar í Madrid var þegar gert viðvart og á meðan fylgdi TF-SIF bátnum eftir inn á Gíbraltarsund í ríflega tvo tíma. Þar mætti spænska lögreglan á hraðbát og handtók fjóra smyglara og gerði tæpt tonn af hassi upptækt.

Samkvæmt fréttatilkynningu spænsku lögreglunnar voru smyglararnir frá Marokkó, Belgíu og Frakklandi.

Áhöfnin á TF-SIF hefur frá júnímánuði haft aðsetur á Malaga á Spáni og sinnt landamæraeftirliti á Miðjarðarhafi á Frontex. Ferðin hefur verið var árangursrík. Áhöfnin hefur tekið þátt í 41 verkefni og stuðlað að björgun 78 flóttamanna og komið upp um fjölmarga smyglara sem reynt hafa að flytja fíkniefni til Spánar.

TF-SIF lagði af stað til Íslands frá Spáni í gær og er væntanleg til landsins síðar í vikunni samkvæmt frétt frá Gæslunni.

https://youtu.be/GPZHJqqFgII

https://youtu.be/BSyBgVzyxQI

 

 

Deila: