Það var mokveiði

91
Deila:

Drangey SK2 var í gær á leið til hafnar á Sauðárkróki. Heildarmagn afla um borð er um 98 tonn, uppistaða aflans er um 88 tonn af þorski og 4 tonn af karfa. Drangey var meðal annars á veiðum á Strandagrunni. Heimasíða Fisk seafood hafði samband við Andra Má Welding Hákonarson stýrimann.

„Við vorum tvo sólarhringa á veiðum, vorum á Strandagrunni og tókum eitt hal í restina á Sporðagrunni. Það var mokveiði fyrsta einn og hálfa sólarhringinn en svo fór að draga verulega úr veiðinni. Það var blíðuveður,“ sagði Andri.

 

Deila: