Þór í árlegum vitatúr

108
Deila:

Áhöfnin á varðskipinu Þór lagði í síðustu viku af stað í árlegan vitatúr í samstarfi við Vegagerðina. Áratugum saman hafa varðskip siglt meðfram ströndum landsins vegna eftirlits með ljósvitum, skerjavitum, sjómerkjum og ljósduflum sem ekki er hægt að komast í frá landi.

Áhöfnin á varðskipinu Þór og starfsmenn Vegagerðarinnar sjá um eftirlit og viðhald á vitum og öðrum sjómerkjum í ferðinni.  Meðal verkefna í vitatúrunum er að yfirfara rafgeyma og sólarspegla auk þess að endurnýja perur. Einnig er skipt um vindrafstöðvar auk annars tilfallandi viðhalds.

Meðfylgjandi myndir sýna þegar dufl og legufæri voru yfirfarin á dögunum. Legufæri ljósduflanna sem gjarnan er fjögurra tonna steinn ásamt allt að 70 metra langri keðju eru hífð upp á dekk Þórs og yfirfarin. Oft þarf að skipta út stórum hluta þeirra vegna tæringar.

Myndir: Landhelgisgæslan / Nonni Ká og Sævar Már Magnússon.

 

Deila: