Þórshöfn heiðurshöfn Þórs

100
Deila:

Hafnarnefnd Langanesbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að Þórshafnarhöfn  verði heiðursheimahöfn varðskipsins Þórs. Ástæðan er auðvitað sama skírskotun Þórshafnar og varðskipsins Þórs til nafns á þrumuguðinum Þór. Hafnarstjórn samþykkti ennfremur að sem heiðursheimahöfn skipsins væri það undanþegið hafnargjöldum en höfnin mun vera sú eina á landinu þar sem varðskipið getur komið til hafnar án þess að greiða hafnargjöld.  Skjalið staðfestir þessa samþykkt hafnarstjórnar.

 

Á myndinni eru yfirmenn á varðskipinu ásamt hafnarstjóra og formanni hafnarstjórnar. Viðstaddir athöfnina um borð í Þór voru sveitarstjórn Langanesbyggðar og hafnarstjórn Þórshafnarhafnar ásamt yfirmönnum varðskipsins. 

Deila: