Þorskur með capers og kóríander

Deila:

Margar þjóðir hafa fisk til hátíðabirgða ólíkt okkur. Það skýrist af því að ferskur gæða fiskur er fámeti hjá mörgum þjóðum, ólíkt því sem hér gerist. Því þykir hann veislumatur og vissulega er vel matreiddur fiskur lostæti og því vel til fundið að hafa hann til hátíðabrigða. Við mælum með þessum einfalda, holla og góða þorskrétti til hvaða veislu sem eru.

Innihald:

4 góður bitar úr þorskhnakka, um 200g hver

salt

nýmalaður svartur pipar

¼ bolli hveiti

¼ tsk. paprikuduft

3 msk. smjör

3 msk. ólívuolía

2 msk. capers

2 límónur, önnur þunnt skorin, hin til helminga og safinn kreistur úr henni.

1 msk. ferskur saxaður kóríander og smávegis meira til skrauts.

1 msk. fersk söxuð steinselja og smávegis meira til skrauts.

Aðferð:

  1. Þurrkið fiskbitana með pappírsþurrku og kryddið með salti og pipar. Blandið saman hveiti og paprikudufti í skál og veltið fiskbitunum upp úr blöndunni.
  2. Hitið ólífuolíuna og smjörið á góðri pönnu á meðalhita. Setjið fiskinn á pönnuna í þann mund sem smjörið byrjar að brúnast. Steikið fiskinn í 3-5 mínútur á hvorri hlið eftir þykkt, eða þar til hjúpurinn er orðin gullinn. Lækkið hitann ef smjörið fer að brenna of mikið.
  3. Þegar fiskurinn er hæfilega steiktur, takið hann til hliðar og haldið heitum. Bætið capersinu út á pönnuna og hitið. Bætið límónusafanum, kóríander og steinselju út á, góðri matskeið af smjöri og hrærið vel saman.
  4. Færið fiskbitana yfir á fat og hellið sósunni yfir. Skreytið með kryddjurtunum og límónusneiðum. Berið fram með soðnum kartöflum salati að eigin vali og ef til vill góðu brauði.

 

Deila: