Þorskur með mosarella og tómötum
Nú skellum við okkur í þorskinn í tilefni fiskveiðiáramótanna. Við höfum þetta bara einfalt og gott og njótum þess borða ferskan hágæða fisk með hollu grænmeti og góðum osti.
Innihald:
500 gr ýsa eða þorskur
1 tsk salt
1-2 tsk eðalkrydd frá Pottagöldrum
1 msk góð olía
1 rauð paprika
1 gul paprika
1/2 brokkolí haus
1 askja cherry tómata
2 msk mosarella ostur
Aðferð:
Olía í eldfast mót. Fiski raðað í mótið, saltað og kryddað. Paprika og brokkolí skorið niður smátt og steikt smá stund á pönnu, ásamt 1/2 dl vatni svo það brenni ekki við og látið malla í 4-5 mín. Grænmeti hellt yfir fiskinn ásamt vökva sem hefur myndast. Ostur og tómatar sett yfir og inní 190°ofn í sirka 10 mín.
Borið fram með kotasælu, grænu salati og brosi á vör í góðum félagsskap!