Þorskurinn úttroðinn af síld

114
Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS kom til Seyðisfjarðar að lokinni veiðiferð  í hádeginu í gær með 92,5 tonn. Aflinn var mest þorskur en um 10 tonn voru ýsa auk þess sem smávegis var af ufsa og karfa. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Steinþór Hálfdanarson sem var skipstjóri í veiðiferðinni. „Sannast sagna var veiðin heldur treg framan af í þessum túr, en það rættist úr í lokin þegar við fengum ein 30 tonn á skömmum tíma. Við hófum veiðar á Tangaflakinu, færðum okkur yfir á Glettinganesflak og síðan aftur á Tangaflakið. Við vorum semsagt bara í kálgörðunum hér heima. Fiskurinn sem fékkst er stór og fallegur og hann er úttroðinn af síld,“ segir Steinþór.

Deila: