Þorskverð lækkar

121
Deila:

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), nú í febrúar var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur lækkar um 3,0%

Óslægður þorskur lækkar um 2,0%

Slægð ýsa hækkar um 3,0%

Óslægð ýsa hækkar um 2,0%

Slægður og óslægður ufsi lækkar um 4,3%

Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 3. febrúar 2021.

 

Deila: