Þrjú tilnefnd til hvatningarverðlauna

Deila:

Þrjú fyrirtæki hafa verið valin úr hópi tilnefninga til að hljóta Hvatningarverðlaun Sjávarútvegsráðstefnunnar og TM árið 2019. Tilkynnt verður um vinningshafa verðlaunanna á Sjávarútvegsráðstefnunni sem haldin verður í Hörpu dagana 7. og 8. nóvember næstkomandi.
Við mat á tillögum var litið til frumleika og áhrifa á virðisaukningu. Einnig var litið til áhrifa á ímynd íslensks sjávarútvegs, sjálfbærni og samstarfs.

Niceland Seafood: fyrir nýstárlegar leiðir í að bjóða upp á ferskan, íslenskan fisk með rekjanleikalausn sem sýnir neytandanum hvernig fiskurinn ferðast frá veiðum í verslanir/veitingarhús.
Codland: fyrir framtak sem mun skapa verðmæti og atvinnu og tryggja þá ímynd enn fastar í sessi sem einkennt hefur íslenskan sjávarútveg um aukna nýtingu á hráefni til verðmætasköpunar.
Sjávarklasinn: fyrir stuðning við nýsköpun og samvinnu hinna ýmsu aðila innanlands og utan. Mikill fókus hefur verið á sjálfbærni og hafa verkefnin stuðlað að auknu samstarfi fyrirtækja, menntastofnanna og ríkisstofnanna.

Deila: