Þróa nýja tækni til umhverfisvöktunar fiskeldis

Deila:

Matís og RORUM ehf. hafa ákveðið að sameina krafta sína og sérþekkingu til að þróa saman nýja tækni til umhverfisvöktunar fiskeldis í sjókvíum. Í verkefninu verður notast við tegundaauðgi (Species richness), sem er góður mælikvarði fyrir ástand botns við eldiskvíar, að því er segir í upplýsingum um verkefnið frá Matís.

Erfðafræðilegum aðferðum beitt
„Markmið verkefnisins er að þróa örugga, ódýra og hraðvirka aðferð til að meta ástand botndýrasamfélaga á eldissvæðum með erfðafræðilegri aðferð. Aðferðin mun einfalda og flýta ákvarðanatöku um lengd hvíldartíma eldissvæða og byggja þannig lengd hvíldartíma á raunverulegum gögnum um ástand lífríkis á hverjum tíma. Þetta er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að eftirlitsstofnanir þurfa að vera vel upplýstar um ástand á eldissvæðum og miklir hagsmunir eru fyrir eldisfyrirtækin að nýta eldissvæði á sjálfbæran hátt,” segir í umfjölluninni og ennfremur að rannsóknir  RORUM hafi sýnt að ákveðnar tegundir, eða hópar tegunda, einkennk mismunandi ástand undir og nærri fiskeldiskvíar.

Nýtist við vöktun fiskeldis
Í verkefninu eru valdar 30 tegundir hryggleysingja sem eru einkennandi fyrir mismunandi ástand sjávarbotns og DNA raðir í hvatbergenum þeirra raðgreindar en hvatberagen eru einstök fyrir hverja tegund.
„DNA raðirnar eru vistaðar í gagnagrunni til tegundagreiningar á óþekktum botnsýnum og þjónar því gagnagrunnurinn mikilvægu hlutverki fyrir vöktun og rannsóknir.
Þekking, reynsla og gagnagrunnur um botndýr í íslenskum fjörðum er grunnurinn að samstarfi Matís og RORUM í verkefninu og mun skila af sér þessari nýju tækni. Niðurstöður munu nýtast beint við vöktun fiskeldis og rannsóknum almennt á lífríki íslenskra fjarða.“

Verkefnið er styrkt af Umhverfissjóði sjókvíaeldis.

Deila: