Til veiða á íslenskri sumargotssíld

125
Deila:

Börkur NK hélt til veiða á íslenskri sumargotssíld í gærdag. Í tilefni af því ræddi heimasíða Síldarvinnslunnar stuttlega við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra.
„Við gerum einungis ráð fyrir einum túr vestur fyrir land. Mér skilst að veiðin á þessari síld hafi verið í Faxadýpi og Jökuldýpinu að undanförnu. Gert er ráð fyrir að Beitir fari einnig í einn túr. Íslensk sumargotssíld hefur undanfarin ár haldið sig á þessu svæði og vonandi munum við koma með góðan afla til vinnslu í Neskaupstað eftir helgina. Það er alveg kominn tími til að þessi síldarstofn fari að rétta úr kútnum en undanfarin ár hefur þessi síld einkum verið veidd þarna fyrir vestan land. Að loknum þessum síldartúr geri ég ráð fyrir að farið verði að hyggja að kolmunnaveiðum,“ segir Hjörvar.
ljósmynd Smári Geirsson

 

Deila: