
Tíu lítil og krúttleg hol
Bjarni Ólafsson AK kom til Neskaupstaðar um hádegi í gær með 970 tonn af makrílmiðunum í Síldarsmugunni. Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Runólfs Runólfssonar skipstjóra í gær og spurði hvernig veiðiferðin hefði gengið.
„Hún gekk þokkalega. Við vorum tvo sólarhringa að fá þennan afla í skipið. Við tókum fimm hol og síðan fengum við afla úr fimm holum hjá Berki. Þetta voru semsagt tíu lítil og krúttleg hol. Aflinn er töluvert síldarblandaður. Það var hörkuveiði á meðan við vorum síðast að landa en þegar við komum út var veislan búin og veiðin dróst verulega saman. Við vorum að veiðum að þessu sinni 630 mílur frá landi þannig að það er ofboðslega langt að fara. Mér skilst að í gær og í nótt hafi afli skipanna á miðunum verið misjafn en yfirleitt heldur lítill og hjá sumum nánast ekki neinn. Ég var að skoða veðurspá og hann spáir ekki vel. Það bendir allt til þess að næsta vika verði bræluvika í Smugunni,“ segir Runólfur.
Bjarni Ólafsson AK að fara að dæla afla frá Berki NK í Smugunni. Ljósm. Björn Steinbek
Tengdar færslur
Mikið óveitt af ufsa
Mikið er óveitt af ufsa nú þegar fiskveiðiárinu er að ljúka. Það er svipuð staða og í fyrra. Kvótinn nú er 78.700 tonn, aflin...
ISI tapaði 300 milljónum
Iceland Seafood International (ISI) tapaði 2,1 milljón evra á öðrum ársfjórðungi eða sem nemur 296 milljónum á gengi dagsins, að...
Eimskip hagnast um 5 milljarða
Tekjur Eimskips á öðrum ársfjórðung námu 283,1 milljón evra sem er 34,1% aukning samanborið við annan ársfjórðung í fyrra. Rek...