Tveir nýir Cleopatra 31 til Noregs

172
Deila:

Nú nýverið afgreiddi bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði tvo nýja Cleopatra báta til Nordlandsfylkis í Norður Noregi. Bátarnir eru báðir af gerðinni Cleopatra 31.  Útgerðarmennirnir eru Trygve  Magnus Johnsen frá Alsvåg og Ove Alvestad frá Sortland.

Trygve og Ove verða sjálfir skipstjórar á bátunum, tveir verða í áhöfn. Bátarnir heita Emmy og Ea. Bátarnir eru 9.6 metrar á lengd og mælast 9 brúttótonn. Aðalvélar eru af gerðinni FPT N67, 420 hestöfl tengdar ZF 286IV gírum.

Bátarnir eru útbúnir siglingatækjum af gerðinni Simrad, Furuno og Olex. Þeir eru er einnig útbúnir með vökvadrifnum hliðarskrúfum sem tengdar er sjálfstýringu.

Bátarnir er útbúnir til neta, línu og handfæraveiða.  Netabúnaður er norskur, línuspil frá Beiti og handfærarúllur frá DNG.

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Rými er fyrir 14 380 lítra kör í lest. Fullbúin eldunaraðstaða er í lúkar. Svefnpláss er þrjá í lúkar.
Bátarnir eru kominn til Noregs

 

Deila: