Tveir nýir togarar í flota Fisk Seafood

Deila:

Fisk Seafood ehf. gekk í dag frá kaupum á tveimur skipum af Gjögri hf. á Grenivík. Um er að ræða skuttogarana Vörð EA-748 og Áskel EA-749.  Einnig keypti Fisk Seafood tæplega 660 tonn af aflaheimildum Gjögurs. Aflaheimildir Fisk Seafood verða eftir kaupin tæplega 23 þúsund tonn eða um 6% af úthlutuðum aflaheimildum fiskveiðiársins 2018/2019. Skipin verða afhent í lok júlí á næsta ári og um sama leyti fær Gjögur tvö ný skip til afhendingar. Verðmæti viðskiptanna miðað við núverandi gengisskráningu eru tæplega  1,7 milljarðar króna.

Vörður var smíðaður árið 2007 hjá Nordship í Póllandi. Skipið er tæplega 29 metra langt, ríflega 10 metrar á breidd, 285 rúmlestir og 485 brúttó tonn að þyngd. Áskell er stálskip sem smíðað var hjá skipasmíðastöðinni Ching Fu í Taiwan árið 2009. Skipið er tæplega 29 metra langt, rúmlega 9 metra breitt og 362 brúttó tonn að þyngd. Skipin voru seld án kvóta en í sérstökum viðskiptum með aflaheimildir  keypti Fisk Seafood af Gjögri tæplega 350 tonna kvóta í ufsa og 245 tonn í djúpkarfa auk smærri heimilda í löngu, blálöngu, keilu, skötusel og þykkvalúru.

„Skipakaupin eru liður í endurnýjun og endurskipulagningu á flota Fisk Seafood. Með nýjum skipum í stað hinna eldri eykst öryggi um borð og aðbúnaður batnar til muna. Endurnýjun er einnig ætlað að efla hagkvæmni í rekstri, fjölga heppilegum fiskimiðum með tilheyrandi fjölbreytni veiðanna,  bæta meðferð aflans og auka um leið verðmæti hans,“ segir í frétt frá Fisk Seafood.

 

Deila: