Umframafli á strandveiðum í viku 11 um 8 tonn

101
Deila:

Leyfi til strandveiða hafa verið gefin út til 681 báta og var landaður afli strandveiðibáta þriðjudaginn 20. júlí samtals 8.118.071 kg., sem er 63.41% af þeim heimildum (12.271 tonn) sem úthlutað er til strandveiða á fiskveiðiárinu 2020/2021.

Á strandveiðum má hver bátur landa að hámarki 650 kg. af slægðum afla í þorskígildum talið í hverri veiðiferð. Undantekning er þó ef ufsa er landað sem strandveiðiafla í verkefnasjóð, sbr. 4. tölul. 5. gr. um reglugerðar um strandveiðar, en þá reiknast ufsaaflinn ekki til strandveiðiafla.

Í 11. viku strandveiða frá 12. júlí – 16. júlí lönduðu 208 skip afla umfram leyfilegan heildarafla í veiðiferð, samtals 8.131 kg. Meðfylgjandi myndi sýnir yfirlit yfir umframafla í elleftu viku. Bláu súlurnar sýna þau 15 skip sem lönduðu alls 100 kg. þíg. eða meira yfir leyfilegan heildarafla í veiðiferð. Kökuritið sýnir umframafla eftir svæðum og er mestur umframafli á svæði A (sem jafnframt er stærsta svæðið) eða 4.115 kg. í þorskígildum talið.

Láréttu súlurnar sýna heildarmagn umframafla fyrir hvern löndunardag og var umframafli mestur mánudaginn 12. júlí eða 2.836 kg.

Deila: