Útskrift hjá Sjávarakademíunni

96
Deila:

Nú í vikunni útskrifuðust nemendur af vorönn úr Sjávarakademíunni. Nemendur kynntu lokaverkefni sín fyrir kennurum, nemendum og stjórnendum og var frábært að sjá hvað það eru mörg tækifæri innan bláa hagkerfisins og hvað nemendur voru fljótir að grípa þau. Einnig var ánægjulegt að sjá hvað hópurinn var meðvitaður um vitundarvakningu á umhverfismálum og voru búin að hugsa viðskiptahugmyndirnar sínar vel til enda með sjálfbærni í huga.

Þetta var í annað skiptið sem boðið er upp á námsleiðina í fullu annarnámi en markmið Sjávarakademíunnar er að efla þekkingu og áhuga á stofnun fyrirtækja og nýsköpun sem tengist bláa hagkerfinu.
Þetta var frábær hópur sem fer frá okkur og erum við viss um að þau eiga eftir að gera góða hluti í framtíðinni.

„Við erum sérstaklega stolt af þessum hópi útskriftarnemenda.Viðskiptahugmyndirnar, sem nemendurnir kynntu, voru afar áhugaverðar, og hlakka ég til að sjá þær komast í framkvæmd á næstu misserum,“ Berta Danielsdóttir framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans og leiðbeinandi Sjávarakademíunnar.

„Nám í Sjávarakademíunni er mjög góð viðbót fyrir annars fjölbreytt nám í Fisktækniskóla Íslands,“ segir Ólafur Jón Arnbjörnsson skólameistari Fisktækniskóla Íslands

Sjávarakademían er samstarfsverkefni Fisktækniskóla Íslands og Íslenska sjávarklasans og fer kennsla fram í Húsi sjávarklasans við Gömlu höfnina í Reykjavík. Námið er á framhaldsskólastigi og mun vonandi festa sig í sessi sem valmöguleiki fyrir þá sem vilja kynnast bláa hagkerfinu betur.

 

Deila: