Útvegsmannafélag Suðurnesja styrkir Bláa herinn

242
Deila:

Milljónastyrkur til Bláa hersins frá Útvegsmannafélagi Suðurnesja „Þetta er stærsti dagur sem Blái herinn hefur upplifað. I love it,“ sagði Tómas J. Knútsson, foringi Bláa hersins, kampakátur þegar hann tók á móti fimm milljóna króna styrk frá Útvegsmannafélagi Suðurnesja til hreinsunarverkefna á Reykjanesskaganum.

Það voru þau Erla Pétursdóttir frá Vísi hf. og Heiðar Hrafn Eiríksson frá Þorbirni hf. sem undirrituðu samning við Bláa herinn um hreinsunarstarfið en auk þessara tveggja útgerðarfélaga eiga Gjögur hf., Nesfiskur hf., Saltver hf. og Víkurhraun ehf. aðild að Útvegsmannafélagi Suðurnesja.

Erla Pétursdóttir sagði að umhverfisvitund væri mál málanna í dag og hreint haf og heilbrigðir fiskistofnar skiptu máli í dag og til framtíðar. Það væri markmiðið að skila hafi og strönd í betra ástandi til komandi kynslóða.

„Útgerðarmenn á Suðurnesjum ákváðu að leggja þessu mikilvæga máli lið sem Tómas hefur verið að sinna af myndarskap í gegnum árin og við erum ánægð að taka þátt í átaki í hreinsun á fjörunum á Suðurnesjum. Tómas hefur gert þetta vel en nú ætlum við öll að leggjast á árarnar og gera enn betur og fá alla í lið með okkur.“

– Útvegsmenn og útgerðarmenn finna til samfélagslegrar ábyrgðar í þessum málum?

„Já, við vitum að við berum mikla ábyrgð á þessu og höfum verið að vinna mikið í þessum málum út frá samfélagsstefnu sem við höfum gert. Umhverfismálin eru þar í brennidepli. Við viljum skilja vel við hafið, að hafið sé hreint og fiskistofnarnir sjálfbærir skiptir okkur gríðarlega miklu máli. Þetta skiptir okkur máli, þjóðarbúið allt og komandi kynslóðir og við erum ánægð að fá að taka þátt í þessu.“

Á fréttamannafundi sem haldinn var við þetta tækifæri kom fram að stefnt væri að því að eftir sumarið 2021 yrðu fjörur Suðurnesja hreinustu fjörur á Íslandi.

„Við stefnum að því og setjum markið hátt. Þetta er eitthvað sem við gerum í ár og þarf svo að viðhalda. Við erum virkilega ánægð að taka þátt í þessu verkefni. Tómas Knútsson og Blái herinn hafa lyft Grettistaki í umhverfismálum og það er frábært að hafa svona drifkraft á svæðinu sem drífur okkur áfram til góðra verka,“ sagði Erla Pétursdóttir.

Tómas Knútsson sagði við sama tækifæri að öll berum við samfélagslega ábyrgð á því að hafið sé hreint. „Og við eigum mjög hreint haf og það er ekkert af nýju rusli að skola á fjörur. Þetta er allt gamalt dót sem er að sópast upp úr hafinu. Það er líka alltaf minna og minna af rusli því það eru sífellt fleiri sem taka sig til og eru að hreinsa sem sést best í átaki eins og plokkdeginum. En það er líka rusl sem er að fjúka frá landi og út sjó,“ segir Tómas.

Um þriðjungur styrkfjárhæðarinnar mun renna til björgunarsveita á Suðurnesjum sem ætla að fara á fimm verstu svæðin og hreinsa en það er hluti af áætlun Suðurnesjamanna ásamt Reykjanes Geopark til að eignast hreinna umhverfi.
Myndin er frá  undirritun samkomulags milli Útvegsmannafélags Suðurnesja og Bláa hersins. F.v.: Heiðar Hrafn Eiríksson, Tómas J. Knútsson og Erla Pétursdóttir. VF-mynd: Hilmar Bragi

Frétt og mynd af vf.is

 

Deila: