Varað við neyslu kjöts og spiks af grindhval

Deila:

„Fullorðnir skulu borða mest eina máltíð af kjöti af grindhval og spiki á mánuði samkvæmt færeyskum ráðleggingum. Konur sem stefna á að verða ófrískar innan næstu þriggja mánaða, eru ófrískar eða hafa barn á brjósti ættu ekki að borða kjöt af grindhval. Stúlkur og konur ættu alfarið að forðast neyslu grindhvalsspiks svo lengi sem þær hafa hug á að eignast börn í framtíðinni. Lifur og nýru grindhvals skal aldrei borða.“

Þessar leiðbeiningar er að finna á heimasíðu Matvælastofnunar. Í kjölfar hvalreka í síðustu viku hafa fyrirspurnir borist Matvælastofnun um hvort ekki megi nýta afurðir grindhvala til manneldis, þegar ekki tekst að bjarga þeim á flot aftur.

Grindhval hefur ekki rekið oft á Íslandsstrendur en í Færeyjum hefur verið hefð fyrir veiði og nýtingu á grindhval. Matvælastofnun leitaði því til Heilsufrøðiliga Starvsstovan í Færeyjum (matvælastofnun Færeyja) varðandi ráðleggingar til almennings um nýtingu afurða grindhvala.

Á síðustu árum hafa verið gerðar nokkrar rannsóknir á aðskotaefnum í fæðu Færeyinga og áhrif neyslu þeirra á heilsu og þroska. Hópar alþjóðlegra sérfræðinga hafa farið yfir niðurstöðurnar og uppfært ráðleggingar um hve mikil inntaka af þessum efnum með mat er talin örugg. Fyrir 2011 voru ráðleggingarnar byggðar á magni kvikasilfurs í afurðum grindhvals, en ráðleggingar sem gefnar voru út árið 2011 og eru birtar hér að ofan taka einnig mið af magni díoxíns og díoxínlíkra PCB efna.

Ein máltíð er reiknuð sem 250 g af kjöti og 50 g af spiki, hrátt og óunnið.

 

Deila: