Veðrið ræður hvar veitt er

91
Deila:

Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar á fimmtudag að lokinni 20 daga veiðiferð. Aflinn var 500 tonn upp úr sjó og blandaður. Verðmæti aflans var tæplega 180 milljónir króna. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Bjarna Ólaf Hjálmarsson skipstjóra og var fyrst spurt hvar skipið hefði verið að veiðum.

„Við fórum hringinn. Við byrjuðum hér fyrir austan og fórum þaðan suður fyrir. Síðan var haldið norður fyrir land. Staðreyndin er sú að við ráðum ekki hvar veitt er, það er veðrið sem ákveður það. Það virðist ekkert lát á þessum brælum sem einkennt hafa veturinn og skipin hrekjast fram og til baka undan þeim. Annars getum við ekki kvartað hvað veiðina varðar. Alls staðar var þokkalegasta kropp og veiðiferðin telst góð.

Gert var ráð fyrir að skipið fari út á ný á sunnudag og það eru gerðar ýmsar ráðstafanir til að tryggja að Covid-19 komist ekki um borð. Til dæmis fór öll áhöfnin frá borði í gærmorgun og þá var skipinu læst. Það verður svo ekki opnað á ný fyrr en hálftíma fyrir brottför. Þá gilda strangar reglur um áhöfnina. Einn úr áhöfninni á konu í sóttkví og hann fer að sjálfsögðu ekkert heim á meðan staldrað er við í landi. Það verður að taka þetta föstum tökum,“ segir Bjarni Ólafur.
Ljósmynd Smári Geirsson.

Deila: