Veiðibann en takmörkuð veiði til eigin neyslu er leyfð
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur gefið út reglugerð um bann við álaveiðum. Allar álaveiðar eru óheimilar í sjó, ám og vötnum á Íslandi samkvæmt nema að fengnu sérstöku leyfi frá Fiskistofu til álaveiða til eigin neyslu.
Ef áll veiðist í lax- eða silungsveiði er skylt að sleppa honum. Öll sala og markaðsfærsla á íslenskum ál og álaafurðum er bönnuð.
Leyfi til veiða vegna eigin neyslu
Fiskistofa getur veitt leyfi til takmarkaðra veiða á áli til eigin neyslu þar sem veiðar hafa verið eða verða stundaðar sem búsílag. Leyfi eru bundin því skilyrði að allur afli sé skráður og að Fiskistofu verði sendar árlega skýrslur um sókn og afla.
Umsóknarfrestur vegna ársins 2019 er til 31. maí nk.