Vel í stakk búin

133
Deila:

Sjávarútvegsdagurinn, í samstarfi Deloitte, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtaka atvinnulífsins, verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 19. október í Silfurbergi, Hörpu og í beinu streymi á netinu.Fundurinn hefst klukkan 8:30 og stendur til klukkan 10:00. Léttur morgunverður frá klukkan 8:00. Yfirskrift Sjávarútvegsdagsins í ár er: Vel í stakk búinn og vísar til þess að sjávarútvegur og fiskeldi komust nokkuð klakklaust í gegnum erfitt ár í fyrra og eru þess albúin að takast á við framtíðina.

Skráning er á deloitte.is

Dagskrá:

Setning og fundarstjórn

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS

„Hin heimskulega og skammsýna rányrkjustefna verður að víkja.“ Fimmtíu ára sjónarmið í fullu gildi.
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands

Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja og fiskeldis árið 2020
Jónas Gestur Jónasson
, löggildur endurskoðandi hjá Deloitte

Samspil sjávarútvegs og loftslagsmála
Hildur Hauksdóttir
, sérfræðingur í umhverfismálum hjá SFS

Deila: