Verð sjávarafurða í sögulegu hámarki

103
Deila:

„Verð íslenskra sjávarafurða mælt í erlendri mynt hefur verið í hækkunarfasa undanfarin misseri. Verðið hélt áfram að hækka á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og hefur hækkað samfleytt 10 fjórðunga í röð. Síðast lækkaði verðið milli annars og þriðja ársfjórðungs 2017. Verðhækkunin að þessu sinni nam 0,7% miðað við fjórða fjórðung síðasta árs. Verð sjávarafurða í erlendri mynt er nú í sögulegu hámarki.“  Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans, en þar segir ennfremur:

„Covid-19-faraldurinn hefur haft mikil áhrif á verð og sölu á íslenskum sjávarafurðum erlendis. Lokun veitingastaða hafði mikil áhrif á eftirspurn eftir ferskum fiski en útflutningsverð á ferskum þorski er umtalsvert hærra en á frystum eða söltuðum. Einnig hafa orðið tafir á greiðslum og afpantanir á sjávarafurðum og kaupendur hafa þrýst á um verðlækkanir. Þessu til viðbótar hefur brottfall nánast alls farþegaflugs til og frá landinu haft sín áhrif á flutning á ferskum fiski á erlenda markaði. Jafnvel þó að búið sé að opna mikið af veitingastöðum í Evrópu á ný mun ganga mjög erfiðlega að koma ferskum fiski til þeirra á meðan flug liggur niðri. Þó mælst hafi verðhækkun á fyrsta fjórðungi í heild sinni má gera ráð fyrir að nokkur verðlækkun hafi átt sér stað eftir að efnahagslegra áhrifa faraldursins fór að gæta í marsmánuði. Líklegt verður að teljast að verð á öðrum fjórðungi verði eitthvað lægra en verðið á fyrsta fjórðungi.

Heimsmarkaðsverð á kjöti og matvælum lækkar

Heimsmarkaðsverð á kjöti hefur gefið nokkuð eftir á síðustu mánuðum en það lækkaði um 5% á fyrsta fjórðungi ársins borið saman við fjórða fjórðung síðasta árs. Aprílmánuður var fjórði mánuðurinn í röð þar sem verð á kjöti lækkar milli mánaða. Heimsmarkaðsverð á matvælum hefur þó ekki þróast alveg eins. Þannig varð 0,7% hækkun á verði matvæla á fyrsta ársfjórðungi. Verðþróun matvæla síðustu mánuði hefur hins vegar legið niður á við. Þannig mældist stöðug verðlækkun frá febrúar og fram í apríl milli mánaða. Til samanburðar hækkaði verð á botnfiski og flatfiski frá Íslandi um 1,1% í erlendri mynt milli fyrsta fjórðungs og fjórða fjórðungs síðasta árs.

Útflutningur sjávarafurða dróst saman á fyrsta fjórðungi

Útflutningur á sjávarafurðum nam 63,9 mö.kr. á fyrsta ársfjórðungi borið saman við 66,5 ma.kr. á sama tímabili í fyrra, en hvort tveggja er á föstu gengi. Samdrátturinn nam 2,7 mö.kr., eða 4%. Það sem helst skýrir samdráttinn er að útflutningsverðmæti loðnu dróst saman um 2,2 ma.kr., eða um 76%, milli ára. Í ár brást loðnuvertíðin annað árið í röð. Mikill samdráttur í útflutningi loðnuafurða milli ára skýrist af því að í fyrra voru til meiri birgðir af loðnuafurðum frá fyrra ári. Birgðirnar eru mun minni nú og útflutningur þess vegna minni en í fyrra. Útflutningur á síld dróst saman um 1,2 ma.kr., eða um ríflega þriðjung. Það má nær eingöngu skýra með minni útflutningi í tonnum talið. Útflutningur á ýsu dróst saman um 1,1 ma.kr. og dróst útflutningsverðmætið saman um tæplega 19%. Útflutt magn í tonnum talið dróst hins vegar saman um fjórðung. Mesta verðmætaaukningin var í útflutningi á þorski. Útflutningur á honum jókst um 1,8 ma.kr., eða 5%. Útflutt magn jókst hins vegar einungis um 0,1%.“

Deila: