Verð á ýsu hækkar en lækkar á þorski

90
Deila:

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. maí 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði á fiski upp úr sjó samkvæmt kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur lækkar um 4,2%
Óslægður þorskur lækkar um 4,5%
Slægð ýsa hækkar um 6,8%
Óslægð ýsa hækkar um 2,2%
Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. maí 2021.

Þetta er annan mánuðinn í röð, sem verð á ýsu hækkar og þorskverð lækkar. Það má sjá í ákvörðun verðlagsstofu frá því í apríl:

Slægður þorskur lækkar um 5,0%
Óslægður þorskur lækkar um 9,3%
Slægð ýsa hækkar um 4,6%
Óslægð ýsa hækkar um 4,2%
Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur

 

Deila: