Verður Arctic Fish selt?
Á dögunum undirritaði norska laxeldissamsteypan Norway Royal Salmon ASA (NRS) og dótturfélagið NRS Farming AS samning um kaup NRS Farming á öllu hlutafé í laxeldisfyrirtækinu SalmoNor AS. Verðið er 6,3 milljarðar norskra króna. Um 70% af kaupverði verður greitt með hlutafé og um 30% með peningum. Gangi kaupin eftir verður NRS 6. stærsta laxeldisfyrirtæki í heiminum með heimildir til framleiðslu á 100 þúsund tonnum af laxi í Noregi og 24 þúsund tonnum á Íslandi. NRS á meirihluta hlutafjár 51,3% í eldisfyrirtækinu Arctic Fish á Vestfjörðum.
Í frétt um málið á veffréttamiðlinum ilaks.no segir Klaus Hatlebrekke, forstjóri NRS aðspurður að sala á eignum NRS sé einn möguleiki til að afla fjár til greiðslu á kaupverðinu. Hann var spurður hvort sala á Arctic Fish væri á dagskránni, en fyrirtækið er metið á 2,8 milljarða norksra króna eða ríflega 40 milljarða íslenskra króna.
Hann svaraði því til að Arctic Fish hefði gert það mjög gott. Það væri möguleiki að selja fyrirtækið en NRS líkaði mjög vel við það.
„Arctic Fish har gjort det veldig bra. Det er et alternativ, men det er et selskap som vi liker veldig veldig godt.“
Ekki er langt síðan að SalMar, eigandi Arnarlax, freistaði þess að kaupa meirihluta í NRS en varð undir í samkeppni við núverandi meirihlutaeigendur.
Frétt af bb.is