Vetrarmælingum á ástandi sjávar lokið

107
Deila:

Lokið er 14 daga vetrarferð rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar í kringum landið, sem er hluti af vöktunarverkefninu Ástand sjávar.

Í leiðangrinum var mældur hiti og selta á föstum sniðum útfrá landinu, en auk þess voru tekin sýni á völdum stöðvum til greiningar á næringarefnum, súrefni og koldíoxíði. Ekki tókst að mæla á öllum stöðvum vegna veðurs, sem var óvenju leiðinlegt þetta árið.

Þá var einnig sinnt nokkrum smærri verkefnum, m.a. var lagt straummælabaujum í Patreksfirði og í Reyðarfirði og ásamt fleiri athugunum, sem er hluti af gagnaöflun vegna sjókvíaeldis. Slíkar  athuganir voru einnig gerð í Eyjafirði.

Safnað var sýnum fyrir Geislavarnir ríkisins vegna vöktunar á magni geislavirkra efna í sjó. Þá voru sett út hlustunardufl fyrir Háskóla Íslands, til að fylgjast með hvalaferðum djúpt útaf Austurlandi og rekdufl, sem mæla umhverfisþætti voru sett í sjóinn á 4 stöðvum umhverfis landið  fyrir erlenda samstarfsaðila.

Greiningu gagna úr leiðangrinum er ekki lokið, en niðurstöðurnar munu m.a. birtast á „Vefur um sjórannsóknir“, á heimasíðu stofnunarinnar og í skýrslu,  „Ástand sjávar“, sem gefin er út reglulega.

 

Deila: