Vilja færa strandveiðar í fyrra horf

80
Deila:

Nýverið samþykkti stjórn Fonts – félag smábátaeigenda á Norðausturlandi áskorun sem beint er til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.  Í henni er skorað á ráðherra að taka aftur upp svæðaskiptingu á afla til strandveiða og setja þær í fyrra horf. Áskorunin er svo hljóðandi, en hún hefur verið birt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Áskorun um breytingu á reglugerð um strandveiðar 2000

„Stjórn smábátafélagsins Fonts á Norðausturlandi skorar á ráðherra sjávarútvegsmála að taka upp aftur svæðaskiptingu á afla til strandveiða og setja þær í fyrra horf.

Stjórn Fonts hefur miklar áhyggjur af að strandveiðar verði stoppaðar af í júlí ef ekki verður gripið til aðgerða.  Mikil fjölgun hefur verið á bátum í strandveiðikerfið og gengur hratt á heildarpottinn þar sem mjög vel veiðist sunnan og vestanlands.

Stjórn Fonts vill benda á að fiskgengd á þeirra svæði C byrjar ekki fyrr en á seinni hluta strandveiða þ.e.a.s. í júlí ágúst.  Með þeirri breytingu á fyrirkomulagi strandveiða að taka svæðaskiptingu afla af og gera strandveiðar að einum heildarpotti kemur C svæði mjög illa.  Einnig má benda á að C svæði hefur ekki notið góðs af þeirri aukningu aflaheimilda síðustu ár sem komið hefur í heildarpott strandveiða og sama má segja með svæði B vegna þeirra breytinga sem gerðar voru þegar svæðaskipting á afla var tekin af.

Stjórn Fonts hefur bent á það áður að ekki gangi að hafa fyrirkomulag strandveiða í einum heildarpotti á meðan ekki sé öllum tryggður sami dagafjöldi þar sem veiðar eru misjafnar eftir svæðum yfir tímabilið og sé það mismunun fyrir þau svæði sem fiskgengd er á seinni hluta tímabilsins.“

 

Deila: