Vilja strandveiðar allt árið

82
Deila:

Landssamband smábátaeigenda hefur ritað sjávarútvegsráðherra bréf þar sem farið er fram á að hann beiti sér fyrir breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, ákvæði um strandveiðar.  Í stað þess að strandveiðar standi yfir í 4 mánuði – maí til og með ágúst og 48 veiðidagar skiptist jafnt á mánuðina verði dagarnir gefnir út til 12 mánaða.  Jafnframt að engar hömlur verði á því hvenær dagarnir verði nýttir en nú er einungis er hægt að nýta þá 4 daga í viku, mánudaga til fimmtudaga

Beiðni LS er tilkomin vegna áhrifa af COVID-19.

Í erindi LS er ennfremur lagt til að ráðherra felli úr gildi reglugerð um hrygningarstopp, veiðiskylda verði afnumin, takmarkanir á flutningi ónýttra aflaheimilda milli ár verði felld úr gildi og heimilt verði að fresta greiðslu veiðigjalds sem verður á eindaga 15. maí nk.

Í niðurlagi bréfsins segir:

Lögð er áhersla á að þær breytingar sem hér eru lagðar til á ákvæðum laga og reglugerða muni hafa það að markmiði að auka sveigjanleika við nýtingu auðlindarinnar í því skyni að sem mest verðmæti fáist.  LS telur að hinar óþekktu og gríðarlega krefjandi aðstæður sem nú ríkja krefjist þess að leitað verði allra leiða til að hámarka heildarhag landsmanna og eru þessar tillögur liður í því.

 

Deila: