Vinnsluskipin taka lítið af þorski

94
Deila:

Vinnsluskipum á Íslandsmiðum er að mestu leyti beitt á veiðar á öðrum teundum en þorski, nema þegar sótt er í veiðar í Barentshafi. Þær byggjast á nánast beinum veiðum af þorski og meðafla. Helstu tegundirnar sem vinnsluskipin eru að taka innan íslensku lögsögunnar eru karfi, ufsi, grálúða og ýsa. Þessi skip erum 15 talsins og virðist ekki vera munur á aflasamsetningu hvort eftirlitsmaður er um borð eða ekki.

Fiskistofa birtir upplýsingar um aflasamsetningu á hinum ýmsu tegundum veiða eftir því hvort eftirlitsmenn stofnunarinnar voru með í för eða ekki. Að þessu sinni birtast hér upplýsingar um aflasamsetningu vinnsluskipa  á árinu 2019. Íslenski vinnsluskipaflotinn er ekki stór og því ná upplýsingarnar til allra vinnsluskipanna. Gögnin sem hér birtast eru birt undir nafni skipanna eins og boðað var að gert yrði þegar sambærileg gögn voru birt um 2018.

Ástæður breytilegrar aflasamsetningar geta verið margvíslegar. Aðstæður í hafinu geta verið ólíkar hverju sinni og ætlun útgerðar og skipstjórnarmanna getur verið mismunandi frá einni veiðiferð til annarrar.

Það er m.a. hlutverk Fiskistofu að hafa eftirlit með að ekki komi til brottkasts. Til þess að rækja það hlutverk sem best beitir Fiskistofa margvíslegum aðferðum og má í því sambandi nefna samvinnu við útgerðir og skipstjórnarmenn, áhættugreiningu við eftirlit og aðgengi allra að upplýsingum um veiðar og afla. Þannig telur Fiskistofa að hún ræki hlutverk sitt að gæta hagsmuna þjóðarinnar við ábyrga nýtingu auðlinda hafs og vatna.

Fiskistofa birtir hér niðurstöður um magn og fjölda fisktegunda í veiðiferðum vinnsluskipa á árinu 2019. Í þeim gögnum sem hér eru tekin saman og birt er borin saman aflasamsetningin á sama skipi í fimm veiðiferðum í röð og þær veiðiferðir auðkenndar þegar veiðieftirlitsmenn Fiskistofu voru um borð. Birtar eru upplýsingar um landaðan afla í tveimur veiðiferðum sama skips á undan og á eftir ferðinni með eftirlitsmanninum eftir því sem við veður komið.

Hér er að finna upplýsingar um aflasamsetningu vinnsluskipa í veiðiferðum á árinu 2019

Myndin hér að neðan sýnir sem dæmi aflasamsetningu í fimm ferðum eins vinnsluskips.

 

 

Deila: