2000 tonnum landað í höfnum Ísafjarðar

145
Deila:

Alls var landað 2003 tonnum í Ísafjarðarhöfn í síðasta mánuði.  Nánast allur aflinn var veiddur í botntroll, aðeins 1,5 tonn voru veidd á handfærum. Taka verður þó fram að 198 tonn er innflutt rækja frá Svalbarði. Að því frátöldu voru 1805 tonn veidd og lönduð á Ísafirði.

Um 40 tonn af rækju var landað í mánuðinum, þar af voru 16 tonn af úthafsrækju sem Klakkur ÍS landaði.

Togararnir þrír lönduðu 1.061 tonni samtals. Páll Pálsson ÍS landaði 581 tonn í fimm veiðiferðum, Stefnir ÍS var með 256 tonn eftir 3 veiðiferðir og Júlíus Geirmundsson ÍS landaði 224 tonnum eftir eina veiðiferð.

Um 700 tonn voru veidd af átta togskipum. Það voru Bylgja VE, Björg EA, Björgúlfur EA, Harðbakur EA, Vörður ÞH, Frosti ÞH, Þinganes SF og Áskell ÞH.
Mynd og frétt af  bb.is

 

Deila: