Þorskur með karabísku ívafi

Þorskinn höfum við Íslendingar fyrr á tímum borðað saltaðan, siginn eða ferskan, oftast einfaldlega soðinn með kartöflum og hamsatólg. En nú er öldin önnur og óteljandi uppskriftir til að fara eftir til að auka fjölbreytni í neyslunni. Hér bjóðum við uppskrift að þorski með karabísku ívafi og það er full ástæða til að reyna þennan bragðgóða, holla og einfalda rétt.
Innihald:
- 500g þorskur, roð- og beinlaus
- 2 msk hunang
- Ólífuolía til steikingar
- 1 grænn pipar, fræhreinsaður og smátt saxaður
- 4 vorlaukar skornir í þunna hringi
- 4 sneiðar af ananas
- 2 lárperur (avocado) flysjaðar og skornar í fleyga
- Salt og pipar
Aðferðin:
Skerið þorskinn í fjögur jöfn stykki og saltið þau og piprið. Setjið hálfa msk. af hunangi ofan á hvern bita. Hitið olíuna á góðri pönnu og þegar hún er orðin snarpheit, eru fiskistykkin sett á hana með hunangshliðina upp. Steikið í 3-5 mínútur eftir þykkt. Snúið þeim þá við og steikið í 3-4 mínútur eða þar til hunangið brúnast. Takið fiskinn af pönnunni og haldið heitum.
Steikið síðan ananasinn á pönnunni og stráið piparnum og vorlauknum yfir. Snúið ananassneiðunum við eftir 2 mínútur og steikið áfram í 2 mínútur, eða þar til hann mýkist og brúnast aðeins.
Færið lárperu- og ananassneiðarnar upp á 4 diska. Leggið fiskistykkin ofan á. Stráið síðan piparnum og vorlauknum yfir og berið fram með soðnum kartöflum eða hrísgrjónum.