Helmingi meiri veiði á bát

101
Deila:

Grásleppuvertíðin hefur farið vel af stað.  Veiði á hvern báta er helmingi meiri en á sama tíma í fyrra og afli hverrar veiðiferðar einnig nokkuð betri. Það veldur hins vegar miklum vonbrigðum hversu fækkað hefur bátum sem stunda veiðarnar, 38% færri nú á veiðum en á sama tíma í fyrra, aðeins 67 bátar búnir að leggja en 103 í fyrra samkvæmt frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda..

Margar ástæður liggja að baki fækkuninni.   Flestir segja allan kostnað við veiðarnar hafa stóraukist á undanförnum árum og hæpið að verð sem nú er í boði skili hagnaði af veiðunum.  Önnur skýring er óvenjuslæmt veður, sem nánast hefur staðið linnulaust frá því lok nóvember.  Þriðja skýringin sem menn nefna er Covid-19.  Samskipti við veiðarnar verða ekki umflúin og því aukin hætta á smiti.

 

Deila: