Jómfrúarferð, Tukuma Artica, til Reykjavíkur

Gámaskipið, Tukuma Arctica, kom í vikunni í jómfrúarferð til Reykjavíkur. Þetta er stærsta gámaskip sem hefur siglingaráætlun til Íslands, 180m x 31m 26046 BT. Um samstarfsverkefni milli Eimskips og Royal Artic Line er að ræða. Tukuma Artica er sérstaklega hannað fyrir aðstæður í Norður Atlantshafi og uppfyllir skilyrði um siglingar á Polar code svæðum. Áætlað er að skipið muni sigla vikulega á milli Grænlands, Íslands, Færeyja og Skandinavíu.
Í tengslum við samstarfið er Eimskip með í smíðum tvö eins 2150 gámaeininga skip sem gert er ráð fyrir að verði komin í rekstur á þessu ári. Skipin verða notuð í vikulegum siglingum á milli Grænlands, Íslands, Færeyja og Skandinavíu. Samstarfið byggir á vel þekktri aðferðafræði í alþjóðlegum skipaflutningum, VSA (Vessel Sharing Agreement), þar sem félögin skipta með sér plássi í skipum sínum á siglingaleiðinni.
Nýju skipin, sem verða stærstu gámaskip sem Eimskip hefur haft í sinni þjónustu, eru sérstaklega hönnuð fyrir aðstæður í Norður Atlantshafi og uppfylla skilyrði um siglingar á Polar code svæðum. Með samstarfinu og stærri skipum næst fram stærðarhagkvæmni í rekstri ásamt því að nýju skipin verða umhverfisvænni og hagkvæmari.
Royal Arctic Line mun í tengslum við þetta samstarf geta boðið uppá flutningaþjónustu við íslenska markaðinn. Með samstarfinu tengist Grænland við alþjóðlegt siglingakerfi Eimskips en með föstum vikulegum siglingum opnast tækifæri fyrir beinar tengingar Grænlendinga inná alþjóða markaði.
Ljósmynd Hjörtur Jónasson.