Mikil bylting að fá faxtækið
Maður vikunnar hefur unnið í sjávarútvegi frá 18 ára aldri og lengst af sem verkstjóri. Síðustu rúmlega 20 árin hefur hann verið í Þorlákshöfn. Fjölbreytileikinn í vinnslu getur verið skemmtilegur, þó það geti nú líka stundum verið erfitt að skipuleggja vinnslu þegar þú veist ekkert hverju er von á.
Nafn:
Ásgeir Ingvi Jónsson.
Hvaðan ertu?
Fæddur út í sveit á Óslandi í Skagafirði.
Fjölskylduhagir?
Í sambúð með Halldóru Halldórsdóttur. Ég eignaðist tvö börn en missti dóttur mína árið 2006. Konan á svo 2 börn og 2 barnabörn.
Hvar starfar þú núna?
Verkstjóri hjá Ramma hf. í Þorlákshöfn.
Hvenær hófst þú vinnu við sjávarútveg?
Ég var 18 ára þegar ég fór að vinna hjá Hraðfrystihúsinu í Hofsós. Reiknaði nú bara með að vera þar stuttan tíma. Tveimur árum síðar var ég beðinn um að vera aðstoðarverkstjóri. Ég hef síðan verið verkstjóri á nokkrum stöðum á landinu en síðan 1997 hef ég verið í Þorlákshöfn.
Hvað er það skemmtilegasta við að vinna við íslenskan sjávarútveg?
Fjölbreytileikinn í vinnslu getur verið skemmtilegur, þó það geti nú líka stundum verið erfitt að skipuleggja vinnslu þegar þú veist ekkert hverju er von á. Líka að hafa fengið að taka þátt í tækniframförum síðustu ára. Þegar ég byrjaði var ekki til faxtæki og þótti það mikill bylting að fá það.
En það erfiðasta?
Starfsmannamál geta stundum verið erfið, sérstaklega þegar þú vinnur í litlum bæjarfélögum þar sem allir þekkja alla.
Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur lent í í störfum þínum?
Margt skrýtið hefur nú komið fyrir í gegnum tíðina en ætli sé ekki best að segja frá því þegar ég gleymdi því að ég var að tala í símann á Grenivík. Þetta var fyrir tíð gsm og slíks búnaðar. Það var kallað á mig fram í sal og ég bað manninn að bíða aðeins. Fór svo fram og gerði það sem þurfti þegar ég kom inn aftur ca. 15 mín síðar skildi ég ekkert í því að símtólið lá á borðinu. Það merkilega var að maðurinn beið en þá í símanum.
Hver eftirminnilegasti vinnufélagi þinn?
Mér dettur nú bara í hug sá sem réði mig á sínum tíma en það var Hólmgeir Einarsson, síðar fisksali í Breiðholtinu. Hann kenndi mér margt sem nýst hefur enn þann dag í dag. Ég gæti líka nefnt „gömlu“ trillukarlana í Hrísey, er reyndar nýbúinn að átta mig á því að þeir voru lítið eldri þá en ég er í dag og ég er þó mjög ungur en þá.
Hver eru áhugamál þín?
Ég spila bridge og er ný byrjaður aftur í hestamennsku eftir margra ára hlé.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Góða nautasteik er verulega góð.
Hvert færir þú í draumfríið?
Annað hvort mundi ég liggja í leti á Tenerife eða fara í hestaferð um óbyggðir Íslands.