Blíða upp á hvern dag

94
Deila:

Ísfisktogarinn Gullver NS landaði á Seyðisfirði á miðvikudag og hélt til veiða á ný fljótlega að lokinni löndun. Skipstjóri í veiðiferðinni var Rúnar L. Gunnarsson og sló heimasíða Síldarvinnslunnar á þráðinn til hans í gær. Fyrst var spurt um afla gærdagsins.

„Aflinn var 94 tonn og blandaður. Mest var af þorski og ýsu, en einnig drjúgt af ufsa og karfa. Aflinn fékkst á Papagrunni, Lónsdýpi og Lónsbugt. Veiðiferðin gekk ágætlega og veðurfarið er afar ánægjulegt; það er blíða upp á hvern dag. Núna erum við að reyna fyrir okkur í grálúðu og djúpkarfa með takmörkuðum árangri,“ segir Rúnar.

Nú er strandveiðin í hápunkti og allar fiskvinnslur með nóg af fiski. Fiskverð er mjög lágt þessa dagana vegna mikils framboðs og þá hefur kórónuveiran einnig haft veruleg áhrif.

Ljósmynd Ómar Bogason

 

 

Deila: