Góð veiði allan tímann

97
Deila:

Málmey SK1 kom til hafnar á Sauðárkróki í gær Heildarmagn afla um borð er um 197 tonn.
Heimasíða Fisk Seafood hafði samband við Hermann Einarsson skipstjóra:

„Við vorum fjóra sólarhringa á veiðum.  Veiðiferðin byrjaði djúpt suðvestur af Reykjanesi, fórum svo á Eldeyjarbanka og Flugbrautina, og enduðum á Vestfjarðarmiðum.  Það var góð veiði allan tímann, og veðrið var gott fyrir utan síðasta daginn þá var kaldafýla 15-18 m/s“ segir Hermann.

Deila: