Nýir bandamenn í sjálfvirkni í Rússlandi og Asíu

339
Deila:

Skaginn 3X hefur skrifað undir stóra söluhönnunarsamninga við rússnesk og suðurkóresk fyrirtæki sem hyggjast nútíma- og sjálfvirknivæða fiskvinnslu sína til að auka hagræðingu, gæði og afrakstur.
Nútíma fiskvinnsla krefst sjálfvirkni og gagnavinnslu sem uppfyllir kröfur bæði innanlands- og
alþjóðamarkaðar. Þó sjálfvirkar heildarlausnir hafi verið staðalbúnaður í greininni á ákveðnum
svæðum í áratugi eru þau fyrst núna að verða nauðsynleg í mörgum vinnslustöðvum í Rússlandi og
Asíu.
Leiðandi rússnesk sjávarútvegsfyrirtæki hefja samstarf með Skaganum 3X
Rússnesku sjávarútvegsfyrirtækin Magadanryba og Yuzhno-Kurilskiy Rybokombinat sem bæði eru
leiðandi á sínu sviði gerðu nýverið ráðgjafasamning við Skagann 3X sem snýr að þróun
hugvitsamlegra lausna í sjálfvirknivæðingu fiskvinnslu fyrirtækjanna. Breytingar á vinnumarkaði,
auknar kröfur um skilvirkni og afrakstur ásamt betri vöru eru meðal þeirra þátta sem knýja fram
aukna sjálfvirkni og nútímavæðingu í geiranum.
„Góður árangur í nýlegum verkefnum okkar í landvinnslu fyrir rússnesku fiskvinnslufyrirtækin JSC
Gidrostroy og V.I. Lenin hefur orðið til þess að við erum nú mikilvægur samstarfsaðili margra
fyrirtækja bæði í Rússlandi og Asíu sem sækjast eftir að sjálfvirknivæða ferla og þróa nýjar og
nútímalegar vinnslustöðvar,“ segir Arnar Friðrik Albertsson yfirmaður söluhönnunar Skagans 3X.
„Sjálfvirkni, bætt vinnuvistfræði og skilvirkari vinnsla á stærri skala eru allt sérfræðisvið Skagans 3X
og hafa verið um áratuga skeið.“

Arnar Friðrik Albertsson

Árangur frá upphafi
Sérfræðingar Skagans 3X koma að hönnun úthugsaðra vinnsluferla og -búnaðar sem má skala upp,
allt frá upphafi þróunarferlisins. Allt er þetta byggt á nýjustu þekkingu og bestu starfsvenjum sem eru
svo aðlöguð að þörfum hvers viðskiptavinar fyrir sig.
„Það er mikilvægt fyrir vinnslurnar að fá réttu ráðgjöfina strax í upphafi og koma þannig í veg fyrir
vandamál þegar fram í sækir. Það er bæði kostnaðarlega hagkvæmt og skilvirkt,“ segir Valeriy
Akbashev, fulltrúi Skagans 3X í Rússlandi sem hefur verið í lykilhlutverki við kynningu þjónustunnar.
„Með því að undirrita samning við Skagann 3X fá fyrirtæki í sjávarútvegi aðgang að hafsjó af
upplýsingum og þekkingu í þróun og innleiðingu nútímalegra, skalanlegra vinnslulausna sem skila
auknum afrakstri, gæðum og vinnsluhraða.“
Háþróaðasta fiskvinnsla Suður-Kóreu
Hyeseung Fisheries í Suður-Kóreu hefur einnig gert samning við Skagann 3X um aðstoð við þróun
nýrrar fiskvinnslu sem stefnt er að að verði háþróaðasta landvinnslan á þessu svæði. Suður-Kórea
fylgir svipuðum straumum og Rússland þar sem sífellt fleiri fyrirtæki leggja áherslu á að bæta osjálfvirknivæða verkferla. Aukin samkeppni á innanlands- sem og útflutningsmörkuðum hefur ýtt
undir þessar breytingar ásamt vexti í greininni.
„Nýi samningurinn við Hyeseung Fisheries lofar góðu og verður spennandi verkefni fyrir sérfræðinga
okkar í fiskvinnslu,“ segir Arnar. „Þetta er teymi sem hefur þróað og innleitt stórar og flóknar
heildarlausnir og það verður ánægjulegt fyrir okkur að taka þátt í að hanna þessa tímamóta
vinnslustöð.“
Sérsniðin vinnsla og hágæðakröfur
Enginn af þessum samningum er eins þannig að nálgast þarf hvern og einn á sérsniðinn hátt og með
miklum sveigjanleika í hönnunarferlinu. „Þegar þessir samningar breytast í sölusamninga verður
uppsafnað virði þeirra vel yfir 40 milljón evrum.“ segir Arnar. „Fjölbreyttur bakgrunnur, menntun,
reynsla og samheldni verkfræðiteymisins er það sem gefur Skaganum 3X það forskot sem þarf til
þess að skila viðskiptavininum nákvæmlega því sem hann þarf. Hver svo sem áskorunin er vinnur
teymið okkar náið með viðskiptavininum að frumlegum, mjög sjálfvirkum lausnum sem ekki einungis
færa þá inn í framtíðina heldur gera það af öryggi.“

Deila: