Hafsbotninn kortlagður

253
Deila:

Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur haldið í leiðangur til kortlagningar hafsbotnsins. Leiðangurinn stendur til 24. júní.

Áætlunin í júní er að kortleggja 22 þúsund ferkílómetra svæði í Suðausturdjúpi sem er á bilinu 800 – 2300 metra dýpi. Svæðið er framhald af mælingum frá árinu 2019 og markmiðið er að tengjast mælingum frá árinu 2017, í norðurenda.

Frá árinu 2017 er kortlagning hafsbotnsins átaksverkefni stofnunarinnar til næstu 12 ára.

Markmið verkefnisins er að afla þekkingar um hafsbotninn innan efnahagslögsögu Íslands sem mun nýtast í margháttuðum tilgangi og er forsenda fyrir vísindalegri nálgun við sjálfbærri nýtingu, vernd og rannsóknir auðlinda í hafinu, á, í og undir hafsbotni.

Davíð Þór Óðinsson er leiðangursstjóri.

 

 

Deila: