Gengið frá sölu og afhendingu dráttarbátsins Jötuns til Þorlákshafnar

Gengið hefur verið frá sölu og afhendingu dráttarbátsins Jötuns til Þorlákshafnar. Jötunn er tæplega 100 tonna stálbátur sem smíðaður var í Hollandi árið 2008. Hann hefur 27 tonna togkraft.
Þegar dráttarbáturinn var auglýstur til sölu, þá bárust tvö tilboð í hann. Hafnarsjóður Þorlákshafnar átti hærra boðið, 220,5 milljónir. Hafnarfjarðarhöfn bauð 202 milljónir. Hafnarstjórn fól Gísla Gíslasyni hafnarstjóra að ganga til samninga við hæstbjóðanda.
Þess má geta að þetta er í annað sinn sem dráttarbátur Faxaflóahafna er seldur til Þorlákshafnar. Jötunn eldri, sem nú heitir Ölver hjá Þorlákshöfn, var einnig seldur til Þorlákshafnar árið 2007. Sá dráttarbátur er rúmlega 40 tonn og með 14 tonna togkraft.
Á myndinni eru Elliði Vignisson, sveitarstjóri í Ölfusi, Gísli Gíslason, hafnarstjóri í Reykjavík, og Hjörtur Jónsson, hafnarstjóri í Þorlákshöfn.