Huginn með mestan makrílafla

134
Deila:

Makrílveiðar fara fremur rólega af stað í sumar. Stóru skipin sem sækja lengra út eru komin með töluvert, en smábátarnir hafa ekki hafið veiðar að neinu marki. Mikið hefur verið af síld með makrílnum og hefur það valdið einhverjum vandkvæðum.

Aflinn nú er kominn í um 36.000 tonn en leyfilegur heildarafli er 167.000 tonn samkvæmt aflastöðulista Fiskistofu í gærkvöldi. Nokkur skip eru komin yfir 2.000, en Huginn VE er langaflahæstur með 3.800 tonn. Næstu skip eru Venus NS með 2.960, Kap VE með 2.700 tonn, Víkingur AK með 2.600 tonn, Jóna Eðvalds SF með 2.500 tonn, Börkur NK með 2.200 tonn og Ásgrímur Halldórsson SF með 2.100 tonn.
Á myndinni er verið að landa síld og makríl út frystitogurum Þorbjarnar hf. í Grindavík, Hrafni Sveinbjarnarsyni og Gnúpi í gær.
Ljósmynd Hjörtur Gíslason

Deila: