Guðmundur í Nesi með mestar aflaheimildir

Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2020/2021. Úthlutunin fer fram á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til 5,3% frádráttar fyrir jöfnunaraðgerðir með sama hætti og undanfarin ár. Tekið skal fram að enn eru fáein skip ófrágengin og getur því úthlutun til skipa enn breyst lítillega.
- Að þessu sinni er úthlutað 353 þúsund tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 372 þúsund þorskígildistonn í fyrra.
- Úthlutun í þorski er tæp 202 þúsund tonn og dregst saman um 13 þúsund tonn frá fyrra ári.
- Ýsukvótinn eykst um 3 þúsund tonn og fer í rúm 35 þúsund tonn.
Vakin er athygli á að síðar á árinu verður úthlutað aflamarki í deilistofnum og ekki er óalgengt að aukið sé við aflamark í uppsjávarfiski. Benda má sérstaklega á að engri loðnu var úthlutað að þessu sinni. Ætla má að heildaraflamark einstakra skipa og hafna og innbyrðishlutfall þeirra breytist í kjölfar frekari úthlutana þegar líður á fiskveiðiárið.
Skip með mestu úthlutunina
Nú er það Guðmundur í Nesi sem slær út Sólbergið sem það skip sem fær mestu aflamarki úthlutað. Guðmundur í Nesi fær 13.714 þorskígildistonnum úthlutað en Sólber fær úthlutað 10.670 þorskígildistonnum – það er um 300 tonnum meira en í fyrra en dugar ekki til þegar Guðmundur í Nesi bætti við sig um 3.000 tonnum. Þessi tvö skip skera sig úr frá öðrum skipum að þessu leyti.
Úthlutun eftir fyrirtækjum
- Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 90,4% af því aflamarki sem úthlutað er og hækkar það hlutfall lítillega frá í fyrra.
- Alls fá 326 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað nú eða 10 færri en í fyrra.
- Sé litið til þeirra sem eru með mesta úthlutun fær Brim (áður HB Grandi) mestu úthlutað til sinna skipa eða 9,6% af heildinni, næst kemur Samherji með 6,9% og þá FISK Seafood með 6,3% og Þorbjörn hf. með 5,6%.
Úthlutun eftir útgerðarflokkum
- Bátar með krókaaflamark eru nú 238 og fækkar um 47.
- Skipum í aflamarkskerfinu fækkar um 6 á milli ára og eru nú 175.
- Bátar undir 15 m og 30 tonnum fá úthlutað rúmlega 46 þúsund þorskígildistonnum
- Bátar yfir 15 og 30 tonnum fá úthlutað 306 þúsund þorskígildistonnum
Skel- og rækjubætur
Alls 1.852 þorskígildistonnum er úthlutað nú í upphafi árs sem skel- og rækjubótum en það er um heldur minna en í fyrra og fara þau til 50 báta en þeir voru 51 á fyrra ári.