Humarveiðisvæðum í Jökuldýpi lokað

93
Deila:

Hafrannsóknastofnun vekur athygli á reglugerðarlokun 837/2020 um tímabundna lokun á tveimur svæðum í Jökuldjúpi vegna atferlisrannsókna á humri.  Lokunin gildir frá 27. ágúst til 15. nóvember.

Í vikunni voru sett út hlustunardufl sem taka á móti sendingum frá merkjum sem fest eru á humra á svæðunum tveimur.  Þannig er hægt að fylgjast með atferli humars, þ.e. ferðum einstakra dýra um botninn og hversu miklum tíma humarinn ver í holum sínum.  Vonast er til að niðurstöðurnar munu væntanlega nýtast inn í stofnmat humars minnka óvissuna í mati á stofninum.

Humar hefur á undanförnum árum fækkað mikið á Íslandsmiðum vegna viðvarandi nýliðunarbrests og hefur Hafrannsóknastofnun ráðlagt mjög takmarkaðar veiðar á humri síðastliðin tvö ár.

 

 

Deila: