Vísbending um samdrátt í útflutningi eldisafurða

207
Deila:

„Útflutningsverðmæti landbúnaðarafurða nam 1,9 milljarði króna í ágúst samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti sem birtar voru í morgun. Það er samdráttur upp á tæp 4% í krónum talið. Að teknu tilliti til gengisbreytinga er samdrátturinn þó ívið meiri, eða tæp 17%, þar sem gengi krónunnar var rúmlega 13% veikara nú í ágúst en sama mánuði í fyrra.“
Svo segir í pistli á heimasíðu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi. Þar segir ennfremur:
„Ofangreindar tölur benda til þess að talsverður samdráttur hafi verið í útflutningsverðmæti eldisafurða í ágúst á milli ára, en þær flokkast undir landbúnaðarafurðir í tölum Hagstofunnar um vöruskipti. Eldisafurðir eru í reynd langstærsti hluti landbúnaðarafurða í útflutningi og hafa verið um 86% af útflutningsverðmæti landbúnaðarafurða á fyrstu 7 mánuðum þessa árs. Vafalítið má rekja þennan samdrátt, sem virðist hafa orðið í ágúst, til lækkunar á verði eldisafurða erlendis, sem er ein af afleiðingum COVID-19 á starfsemi fiskeldisfyrirtækja. Afurðaverð var að jafnaði um 6% lægra í erlendri mynt á fyrstu 7 mánuðum ársins miðað við sama tímabili fyrra. Það má einkum rekja til þeirrar lækkunar sem orðið hefur frá því um miðjan mars þegar COVID-19 skall á.  Eins hefur ástandið hægt á framleiðslu, en engu að síður mælist 7% aukning þar á milli ára á fyrstu 7 mánuðum ársins. Hefur útflutningsverðmæti eldisafurða á tímabilinu því nánast verið á pari það sem af er ári miðað við sama tímabil í fyrra, mælt í erlendri mynt.“

Deila: